Kristinn dæmir í Belgíu
Kristinn Jakobsson mun á fimmtudaginn dæma síðari leik Standard Liege frá Belgíu og Braga frá Porúgal í 32. liða úrslitum UEFA bikarsins. Braga vann fyrri leikinn á sínum heimavelli með þremur mörkum gegn engu. Það er því allt undir í síðari leiknum og á brattann að sækja fyrir heimamenn.
Kristni til aðstoðar í leiknum verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Ólafur Ingvar Guðfinnsson. Fjórði dómari verður Magnús Þórisson.