• þri. 24. feb. 2009
  • Leyfiskerfi

Gögn Grindvíkinga og Fylkismanna hafa borist

Grindavík og Fylkir
grindavikogfylkir

Fjárhagsleg gögn Fylkis og Grindavíkur, fylgigögn með umsókn félaganna um þátttökuleyfi í efstu deild karla 2009, hafa borist leyfisstjórn.  Þessi félög fengu frest til dagsins í dag til að skila og teljast því hafa skilað innan tímamarka.

Þá eiga fjárhagsgögn einungis eftir að berast frá einu félagi, en það er KA, og von er á þeirra gögnum með tölvupósti síðar í kvöld.