Ársreikningur Þórsara er kominn í hús
Endurskoðaður ársreikningur Þórsara á Akureyri hefur borist leyfisstjórn. Skannað eintak af ársreikningnum var sent leyfisstjórn á tölvupósti og prentað eintak verður sent með hefðbundnum pósti. Þórsurum hafði verið veittur frestur til dagsins í dag til að skila gögnum, og teljast þeir því hafa skilað innan tímamarka. KA, Fram, Grindavík og Fylki var einnig veittur frestur til dagsins í dag. Þá er von á gögnum frá ÍBV með póstinum.
Fylgst verður með gangi mála hér á vefnum og fréttir birtar þegar gögn berast.