Ársreikningur ÍBV kominn með póstinum
Ársreikningur ÍBV hefur borist leyfisstjórn með pósti. Stimpill pósthússins á sendingunni sýnir að pakkinn var póstaður 20. febrúar, þannig að Eyjamenn teljast hafa skilað innan tímamarka.
Þar með eiga fjárhagsgögn einungis eftir að berast frá þremur félögum - KA, Fylki og Grindavík. Fylgst verður með gangi mála hér á vefnum.