Miðasala á HM 2010 í Suður Afríku
Í dag, föstudaginn 20. febrúar, er byrjað að taka við miðaumsóknum á leiki í úrslitakeppni HM 2010 sem fer fram í Suður Afríku. Til 31. mars er hægt að skrá sig á heimasíðu FIFA, www.fifa.com og verður svo dregið úr umsóknum þann 15. apríl næstkomandi.
Miðasöluferlinu er skipt niður í fjögur tímabil og hefst næsta tímabil þann 4. maí næstkomandi. Fyrsti leikurinn í úrslitakeppni HM 2010 fer fram 11. júní í Jóhannesarborg.
Hægt er að sækja um miða hér.