KA og Þór veittur frestur til þriðjudags
Leyfisstjórn hefur veitt Akureyrarliðunum Þór og KA frest til þriðjudagsins 24. febrúar til að skila fjárhagslegum gögnum, þ.e. endurskoðuðum ársreikningi ásamt viðeigandi fylgigögnum og staðfestingum.
Ef gögn þessara félaga berast á þriðjudag teljast þau þar með hafa skilað innan tímamarka.