• fös. 20. feb. 2009
  • Leyfiskerfi

HK hefur skilað fjárhagsgögnum

HK
HK

HK í Kópavogi hefur skilað fjárhagsgögnum sínum og hafa þá tvö félög í 1. deild skilað.  Á meðal fjárhagsgagna er ársreikningur og ýmsar staðfestingar honum tengdar, t.d. staðfesting á því að ekki séu vanskil við þjálfara eða leikmenn.

Von er á gögnum frá fleiri félögum í dag og verður fylgst með gangi mála hér á ksi.is.