Fram veittur skilafrestur til þriðjudags
Fram óskaði eftir því við leyfisstjórn að félaginu væri veittur aukinn skilafrestur á fjárhagslegum leyfisgögnum. Leyfisstjórn féllst á beiðnina og framlengdi skilafrest Fram til þriðjudagsins 24. febrúar.
Skili Fram gögnum þann dag telst félagið hafa skilað gögnunum innan tímamarka.