• fös. 20. feb. 2009
  • Leyfiskerfi

Fjárhagsgögn KR-inga hefur verið skilað

KR
kr_merki

Alls hafa nú 10 félög af þeim 24 sem undirgangast leyfiskerfið skilað fjárhagslegum fylgigögnum með leyfisumsókn sinni fyrir keppnistímabilið 2009.  Nú síðast skiluðu KR-ingar sínum gögnum.

Þar með hafa 5 félög í hvorri deild skilað fjárhagsgögnum, þ.e. endurskoðuðum ársreikningi með viðeigandi fylgigögnum og staðfestingum.  Jafnframt hafa gögn tveggja annarra félaga verið póstuð í dag, skv. upplýsingum leyfisstjórnar, þannig að segja má að helmingur félaganna í þessum tveimur deildum sé búinn að skila.