Fjárhagsgögn Aftureldingar hafa borist
Fjárhagsgögn Aftureldingar, sem eru nýliðar í leyfiskerfinu, hafa nú borist leyfisstjórn og þar með hafa gögn 7 félaga borist. Gögn ÍA, Fjarðabyggðar og Víkings Ólafsvík hafa verið póstuð, samkvæmt upplýsingum leyfisstjórnar. Þá hefur Þór og KA verið gefinn frestur til þriðjudags til að skila sínum gögnum.