Keflavík og Haukar fengu Drago stytturnar
Keflavík fékk afhenta Drago-styttuna svokölluðu fyrir Landsbankadeild karla 2008 og Haukar fengu styttuna afhenta í 1. deild karla. Drago stytturnar hljóta þau lið í efstu tveimur deildum karla, sem sýna prúðmannlegastan leik miðað við gul og rauð spjöld dómaranna.
Það var formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, sem afhenti fulltrúum félaganna stytturnar á 63. ársþingi KSÍ.