Keflavík þriðja félagið til að skila
Keflavík varð í dag þriðja félagið til að skila fjárhagslegum leyfisgögnum, viku fyrir skiladag. Félögin virðast vera snemma á ferðinni í ár, en áður höfðu Valsmenn og Stjörnumenn skilað. Ekkert félag í 1. deild hefur þó enn skilað.
Grundvöllur gagnanna sem skilað er nú er endurskoðaður ársreikningur. Ársreikningnum fylgja ýmis fylgigögn og staðfestingar, t.d. á því að engin vanskil séu við leikmenn eða þjálfara, eða við önnur félög vegna félagaskipta.