Öruggur sigur á Liechtenstein
Íslendingar lögðu landslið Liechtenstein að velli í dag í vináttulandsleik sem leikinn var á La Manga. Lokatölur urðu 2 - 0 Íslendingum í vil eftir að staðan hafði verið 1 - 0 í hálfleik.
Íslenska liðið var sterkari aðilinn í leiknum frá upphafi og sköpuðu sér fjöldann allan af marktækifærum. Fyrra markið kom á 28. mínútu þegar að Arnór Smárason skoraði sitt fyrsta A landsliðsmark. Hann fylgdi þá eftir skoti frá Emil Hallfreðssyni sem markvörðurinn varði en hélt ekki boltanum. Eiður Smári Guðjohnsen lék á nokkra varnarmenn Liechtenstein og sendi boltann á Emil.
Síðara mark leiksins kom í upphafi síðari hálfleiks, á 47. mínútu. Eiður Smári skoraði þá beint úr aukaspyrnu, glæsilegt mark, hans 23. landsliðsmark í 56 landsleikjum og bætir hann því enn markametið.
Þrátt fyrir þunga sókn og mörg marktækifæri tókst íslenska liðinu ekki að bæta við mörkum og lokatölur því 2 - 0 Íslendingum í vil.
Næsti leikur íslenska liðsins er vináttulandsleikur gegn Færeyjum, sunnudaginn 22. mars í Kórnum.
Fylgst var með leiknum á heimasíðunni og má sjá textalýsinguna hér.