Ísland upp um þrjú sæti á styrkleikalista FIFA
Á nýjum styrkleikalista FIFA er birtur var í dag, fer íslenska karlalandsliðið upp um þrjú sæti. Ísland er nú í 77. sæti listans en Spánverjar eru efstir sem fyrr. Engar breytingar eru á meðal efstu 10 þjóðanna á listanum.
Holland er efst þeirra þjóða er leika með Íslendingum í riðli í undankeppni fyrir HM 2010, sitja í 3. sæti listans. Skotland er í 32. sæti, Noregur í því 56. og Makedónía eru í 57. sæti.