Mike Riley dæmir leik Íslands og Færeyja
Enski dómarinn Mike Riley mun dæma vináttulandsleik Íslands og Færeyja sem fram fer sunnudaginn 22. mars í Kórnum. Aðstoðardómarar leiksins sem og fjórði dómari leiksins munu verða íslenskir.
Að morgni leikdags mun Riley halda fyrirlestur fyrir íslenska dómara og veita þeim innsýn í sín störf en Mike Riley er einn reyndastur dómara er dæmir nú í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur dæmt 15 leiki í ensku úrvalsdeilinni á yfirstandandi tímabliki þegar þetta er skrifað og dæmt m.a. úrslitaleikinn í FA bikarnum árið 2002 og úrslitaleikinn í Carling bikarnum árið 2004.