Leikjaniðurröðun fyrir Algarve tilbúin
Leikjaniðurröðun hefur verið birt fyrir Algarve Cup 2009 en þar leikur íslenska kvennalandsliðið í B riðli. Fyrsti leikur íslenska liðsins verður gegn Noregi, miðvikudaginn 4. mars.
Næsti leikur verður við núverandi Olympíumeistara, Bandaríkin, 6. mars og lokaleikur riðilsins verður við Danmörku 9. mars. Leikið verður svo um sæti miðvikudaginn 11. mars.