Nýliðar Aftureldingar búnir að skila
Afturelding, sem undirgengst nú leyfiskerfið í fyrsta sinn, hefur skilað fylgigögnum með umsókn félagsins um þátttökuleyfi í 1. deild karla 2009. Þar með hafa öll félögin í 1. deild skilað nema Haukar, m.v. að gögn ÍA og Fjarðabyggðar séu komin í póst. Von er á gögnum Hauka síðar í dag.
Gögnin sem skilað er nú taka til allra þátta nema fjárhagslegra, þ.e. mannvirkjaþátta, knattspyrnulegra þátta, lagalegra þátt og varðandi þau atriði sem snúa að starfsfólki og stjórnun.