Leyfisgögn Hauka komin í hús
Leyfisgögn Hauka hafa nú skilað sér til leyfisstjórnar og hafa þá öll félög í 1. deild skilað, m.v. að gögn Fjarðabyggðar og ÍA séu komin í póst. Gögnin sem skilað er nú snúa að öllum þáttum öðrum en fjárhagslegum.
Meðal atriða sem tekið er á í þeim gögnum sem skilað er nú eru mannvirkjaþættir, knattspyrnulegar forsendur, lagalegir þættir og starfsfólk og stjórnun.