Leiknismenn hafa skilað
Leiknir í Reykjavík hefur skilað fylgigögnum með umsókn um þátttökuleyfi fyrir keppnistímabilið 2009, og þar með hafa bæði Breiðholtsliðin skilað sínum gögnum. Leiknir er sjöunda félagið í 1. deild til að skila gögnum. Þar með hafa félögin í 1. deild tekið forystuna í skilum, þar sem sex Landsbankadeildarfélög hafa skilað.
Mannvirkjaþættir, starfsfólk og stjórnun, lagalegir þættir og knattspyrnulegar forsendur eru mál dagsins í dag, og þau gögn sem félögin skila nú snúa að þessum þáttum. Fjárhagslegum gögnum á síðan að skila 20. febrúar.