Landsbankadeildarfélögin í góðum málum með skil
Landsbankadeildarfélögin 2009 eru í góðum málum með skil á leyfisgögnum, öðrum en fjárhagslegum. Skiladagur gagnanna var í dag, fimmtudaginn 15. janúar. Gögn frá 11 félögum eru þegar komin í hús og samkvæmt upplýsingum leyfisstjórnar fóru gögn Eyjamanna í póst í dag.
Gögnin sem skilað er nú snúa að mörgum þáttum, s.s. uppeldi ungra leikmanna og menntun þjálfara, æfinga- og keppnisaðstöðu, aðstöðu áhorfenda og fjölmiðla, lagalegum þáttum, o.fl.
Í 1. deild eru gögn komin í hús frá átta félögum af tólf. Samkvæmt upplýsingum leyfisstjórnar hafa ÍA og Fjarðabyggð póstað sín gögn í dag. Tvö félög eru þá útistandandi - Afturelding og Haukar - og er vonast eftir gögnum frá þeim síðar í dag.