ÍR-ingar hafa skilað gögnum
ÍR-ingar hafa nú skilað fylgigögnum með leyfisumsókn sinni fyrir keppnistímabilið 2009 og hefur þá helmingur allra félaga sem undirgangast leyfiskerfið skilað sínum gögnum - sex úr Landsbankadeild og sex úr 1. deild.
ÍR hefur aldrei áður undirgengist leyfiskerfið og er félagið því nýliði í leyfiskerfinu. Hinn nýliðinn í leyfiskerfinu er Afturelding, en þessi tvö félög komu einmitt upp úr 2. deild síðasta sumar.