Grindvíkingar klárir í bátana
"Þeir fiska sem róa" segir einhvers staðar og Grindvíkingar eru klárir í bátana að venju. Þeir hafa nú skilað leyfisgögnum sínum, fylgigögnum með umsókn um þátttökuleyfi í Landsbankadeildinni 2009, og hafa þá öll félög í þeirri deild skilað leyfisgögnum, m.v. að gögn ÍBV hafi farið í póst í dag.
Gögnin sem skilað er nú snúa að mannvirkjum, starfsfólki og stjórnun, lagalegum þáttum og knattspyrnulegum forsendum. Fjárhagsgögnum er síðan skilað eigi síðar en 20 febrúar.