Gögnin frá Fjarðabyggð farin í póst í dag
Leyfisgögn Fjarðabyggðar eru farin í póst, samkvæmt upplýsingum leyfisstjórnar, og ættu því að berast á föstudag eða mánudag. Svo framarlega sem stimpillinn á póstsendingunni sýnir sendingardaginn í dag, 15. janúar, þá teljast gögnin hafa borist innan tímamarka. Þetta verður sannreynt þegar gögnin berast og staðfest með frétt hér á vefnum.
Gögnin sem félögin eru að skila núna snúa að öllum öðrum þáttum en fjárhagslegum, þ.e. mannvirkjaforsendum, starfsfólki og stjórnun, knattspyrnulegum þáttum og lagalegum þáttum.