Gögn Eyjamanna farin í póst
Samkvæmt upplýsingum leyfisstjórnar hefur ÍBV sett leyfisgögn sín í póst og ættu þau því að berast leyfisstjórn á föstudag eða mánudag. Svo framarlega sem stimpill pósthússins í Eyjum sýnir sendingardaginn í dag, 15. janúar, þá teljast Eyjamenn hafa skilað gögnunum innan tímamarka. Þetta verður sannreynt þegar gögnin berast og staðfest með frétt hér á vefnum.
Gögnin sem félögin eru að skila núna snúa að mannvirkjaforsendum, starfsfólki og stjórnun, knattspyrnulegum þáttum og lagalegum þáttum.