Framarar búnir að skila
Leyfisgögn Framara hafa nú borist leyfisstjórn og á þá aðeins eitt félag í Landsbankadeild eftir að skila gögnum, m.v. að gögn Eyjamanna hafi farið í póst í dag, en það eru Grindvíkingar.
Þau gögn sem félögin skila nú taka á öllum öðrum þáttum en fjárhagslegum og snúa því að knattspyrnulegum forsendum, mannvirkjaforsendum, starfsfólki og stjórnun og lagalegum forsendum.