Ísland upp um þrjú sæti á styrkleikalista FIFA
Á nýjum styrkleikalista FIFA fyrir karlalandslið er birtur var í dag er íslenska landsliðið í 80. sæti og hefur farið upp um 3 sæti síðan listinn var síðast birtur. Sem fyrr eru Spánverjar í efsta sæti listans en lítil hreyfing var á efst sætum listans að þessu sinni.