Gögn Selfyssinga komin í hús
Leyfisgögn Selfyssinga eru nú komin til leyfisstjórnar og hafa þá fimm félög skilað í hvorri deild um sig, en eins og kunnugt er undirgangast öll félög í Landsbankadeild og 1. deild leyfiskerfið, alls 24 félög.
Þau gögn sem skilað er nú snúa að knattspyrnulegum forsendum, mannvirkjaforsendum, lagalegum þáttum, starfsfólki og stjórnun félagsins. Skilafrestur á þessum gögnum er til og með morgundeginum, fimmtudeginum 15. janúar. Skilafrestur fjárhagslegra gagna er 20. febrúar.