Fylkismenn segja sex
Fylkismenn hafa nú skilað fylgigögnum með leyfisumsókn og hafa þá sex af tólf félögum í Landsbankadeild skilað.
Gögnin sem skilað er nú taka til þátta eins og menntunar þjálfara, uppeldisstefnu félags í málefnum ungra leikmanna, lagalegum þáttum og mannvirkjaþáttum. Lokaskiladagur þessara gagna er fimmtudagurinn 15. janúar.
Lokaskiladagur fjárhagslegra gagna er síðan 20. febrúar.