Vináttulandsleikur við Færeyinga 22. mars
Knattspyrnusambandi Íslands og Knattspyrnusamband Færeyja hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Kórnum, sunnudaginn 22. mars.
Þessar þjóðir áttust við á sama stað í mars á síðasta ári og höfðu Íslendingar þá betur með þremur mörkum gegn engu. Sá leikur var fyrsti karlalandsleikurinn er fór fram innanhúss hér á landi.