Leikurinn við Holland færður um tvo daga
Íslenska kvennalandsliðið leikur vináttulandsleik við Holland í Kórnum 25. apríl næstkomandi. Leikurinn átti upphaflega að fara fram 23. apríl en hefur verið færður aftur um tvo daga að ósk Hollendinga.
Leikurinn er liður í undirbúningi þjóðanna fyrir úrslitakeppni EM kvenna sem hefst í Finnlandi í ágústmánuði.