Knattspyrnuæfingar fatlaðra á Akranesi
Næstkomandi laugardag hefjast knattspyrnuæfingar fyrir fatlaðra á Akranesi og fara þær fram í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Þessar æfingar eru samstarfsverkefni á milli Knattspyrnusambands Íslands, ÍA og Þjóts sem er íþróttafélag fatlaðra á Akranesi.
Æfingarnar verða á hverjum laugardegi fram í maí og hefjast kl. 11:00. Á fyrstu æfingunni nú á laugardaginn, 10. janúar, munu þeir Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari A kvenna og Gunnleifur Gunnleifsson landsliðsmarkvörður taka þátt í æfingunni.
Æfingarnar eru fyrir strákar og stelpur, konur og kalla á öllum aldri hvattir til að láta sjá sig. Foreldrar eru einnig velkomnir að koma og fylgjast með fjörugum æfingum.