Keflavík þriðja félagið til að skila leyfisgögnum
Keflvíkingar hafa skilað leyfisgögnum sínum, fylgigögnum með leyfisumsókn fyrir keppnistímabilið 2009. Keflavík er þar með þriðja félagið til að skila í ár, en áður höfðu Valur og KA skilað sínum gögnum. Félögin virðast vera snemma á ferðinni í ár, en aldrei áður hafa svo mörg félög skilað fyrir áramót.
Skiladagur gagna, annarra en fjárhagslegra, er 15. janúar, þannig að þessi félög eru tiltölulega snemma á ferðinni. Skiladagur fjárhagslegra gagna er svo 20. febrúar.