Yfirþjálfari barna- og unglingastarfs Barcelona í Fífunni
Albert Capellas yfirþjálfari barna- og unglingastarfs Barcelona heldur fyrirlestra og stjórnar æfingum í Fífunni 28. desember næstkomandi. Hann er hér í boði Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands.
Dagskrá:
11:00-12:30 Fyrirlestur um skipulag og hugmyndafræði bak við barna- og unglingastarf FC Barcelona
12.30-14:30 Capellas stýrir æfingu í Fífunni
14.30-15:30 Hlé
15:30-17:00 Fyrirlestur um ársáætlanir og vikuáætlanir sem og skipulag og uppsetningu æfinga hjá FC Barcelona
17:00-19:00 Capellas stýrir æfingu í Fífunni
KÞÍ meðlimir fá frítt á þennan viðburð en aðrir borga 2000 krónur. Athugið takmarkaður aðgangur. Skráning á ulfar_h@simnet.is arnarbill@breidablik.is sigurdurth@bhs.is.
Látið ekki þennan einstaka viðburð framhjá ykkur fara.