Ísland niður um eitt sæti á styrkleikalista FIFA
Nýr styrkleikalisti karlalandsliða hjá FIFA var birtur í dag og fellur Ísland um eitt sæti frá síðasta lista. Íslenska karlalandsliðið er í 83. sæti listans en sem fyrr eru það Evrópumeistarar Spánar er tróna á toppnum.
Þetta er síðasti listinn er birtur er á þessu ári en á fyrsta lista ársins var Ísland í 87. sæti og hefur því farið upp um fjögur sæti á árinu 2008.