Trans World Sport og knattspyrna kvenna á Íslandi
Í sumar komu hér aðilar frá hinum kunna íþróttaþætti Trans World Sport og kynntu sér knattspyrnu kvenna á Íslandi. Fjölluðu þeir um þróun hennar hér á landi og hvernig það gat gerst að svo fámenn þjóð væri á þröskuldi þess að komast í úrslitakeppni EM(umfjöllunin var gerð stuttu fyrir leik Frakklands og Íslands)
Trans World Sport er íþróttaþáttur sem hefur verið við lýði í 21 ár og fjallar þessi vikulegi þáttur um allt á milli himins og jarðar er snertir íþróttir. Rætt er við Sigurð Ragnar Eyjólfsson, Katrínu Jónsdóttur og Margréti Láru Viðarsdóttur í þættinum.
Hægt er að sjá umfjöllunina hér á síðunni.