KSÍ B próf fer fram 28. febrúar 2009
Laugardaginn 28. febrúar stendur fræðslusvið KSÍ fyrir KSÍ B prófi (UEFA B prófi). Prófið er fyrir alla þjálfara sem hafa klárað KSÍ I, II, III og IV og skilað öllum verkefnum á fullnægjandi hátt (engar undantekningar eru gerðar).
Prófað er úr öllu námsefni KSÍ I, II, III og IV og úr nýjustu útgáfu af dómaralögunum. Engin hjálpargögn eru leyfð í prófinu. Ef þjálfurum sem hyggjast taka prófið vantar einhver gögn, þá eru þau öll til sölu á skrifstofu KSÍ. Best er að hringja á undan sér í síma 510-2900 og láta vita hvaða gögn vantar og hvenær þau verða sótt.
Prófið fer fram í fræðslusetri KSÍ í Laugardal en nákvæm tímasetning verður auglýst síðar. Þátttakendur sem búa á landsbyggðinni og vilja taka prófið í sinni heimabyggð, þurfa að hafa samband tímanlega við fræðslusvið KSÍ (dagur@ksi.is), svo hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir. Prófið byrjar á sama tíma um allt land.
Próftöku- og skírteinisgjald er 3.000 krónur.
Skráning hefst þremur vikum fyrir próf.