U17 karla leikur í Wales og U19 karla í Bosníu
Í dag var dregið í undankeppni fyrir EM 2010 hjá landsliðum U17 og U19 karla. Hjá U17 karla leikur Ísland í riðli með Bosníu, Rússlandi og Wales. Riðillinn verður leikinn í Wales dagana 28. september til 3. október. Hjá U19 karla lentu Íslendingar í riðli með Búlgaríu, Norður Írlandi og Bosníu og verður leikið í Bosníu dagana 7. - 12. október næstkomandi.