Alþjóðadagur fatlaðra 2. desember
Special Olympics í Evrópu vekur athygli aðildarlanda á því að myndband um knattspyrnu fatlaðra mun verða sýnt 2. desember á Eurosport í tengslum við alþjóðadag fatlaðra. Kynningin byggir á samstarfi Special Olympics í Evrópu og UEFA og hefur Knattspyrnusamband Íslands komið að þessu verkefni í samvinnu við Íþróttasamband Fatlaðra.