Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir fjármálaráðstefnu föstudaginn 28. nóvember nk. kl. 13-16 í Laugardalshöll. Ráðstefnustjóri verður Stefán Konráðsson framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár.
Dagskrá verður eftirfarandi:
13:00 Setning – Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ
13:10 Ávarp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
13:20 Rekstur íþróttahreyfingarinnar – Gunnar Bragason, formaður Fjármálaráðs ÍSÍ
13:35 Niðurstöður vinnuhóps um áhrif efnahagsástandsins á íþróttahreyfinguna - Lárus Blöndal varaforseti ÍSÍ og formaður vinnuhópsins
13:50 Réttur allra til íþróttaiðkunar – sveitarfélög – Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar
14:05 Sjónarmið sérsambanda – Hörður Þorsteinsson framkvæmdastj. GSÍ
14:20 Sjónarmið íþróttafélaga - Guðjón Guðmundsson formaður KR
14:50 Íþróttir og atvinnulífið
15:00 Ný tækifæri - umræður - Stefán Konráðsson ráðstefnustjóri
15:45 Samantekt – Stefán Konráðsson ráðstefnustjóri
15:55 Ráðstefnuslit – Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ
Ráðstefnan er öllum opin.
|