70 leikmenn boðaðir til æfinga hjá U17 og U19 karla
Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og hafa þjálfararnir Luka Kostic og Kristinn R. Jónsson valið leikmenn til þessara æfinga. Samtals eru það 70 leikmenn sem eru boðaðir á æfingar í þessum aldursflokkum.