U19 kvenna leikur í milliriðli í Póllandi
Í morgun var dregið í milliriðla í EM 2009 hjá U19 kvenna og var Ísland í pottinum. Stelpurnar drógust í riðil með Svíþjóð, Danmörku og Póllandi og verður riðillinn leikinn í Póllandi dagana 23. - 28. apríl.
Sigurvegari riðilsins kemst áfram í úrslitakeppnina sem fer fram í Hvíta Rússlandi að þessu sinni. Einnig kemst það lið áfram, úr riðlunum sex, sem verður með bestan árangur í öðru sæti.
Ísland tryggði sér sæti í milliriðlum með því að lenda í öðru sæti riðils síns sem fram fór í Ísrael fyrr á árinu.