Riðill U17 kvenna fyrir EM 2010 leikinn hér á landi
Í dag var dregið í riðlakeppni EM 2010 hjá U17 kvenna. Leikið verður á haustmánuðum 2009. Landslið U17 kvenna dróst í riðil með Þýskalandi, Frakklandi og Ísrael. Ákveðið hefur verið að þessi riðill verði leikinn hér á landi dagana 4. - 9. september 2009.
Þá var einnig dregið í riðlakeppni EM 2010 hjá U19 kvenna. Þar lenti Ísland í riðli með Sviss, Rúmeníu og Portúgal og verður riðillinn leikinn í Portúgal dagana 19. - 24. september.
Á morgun, miðvikudag, verður svo dregið í milliriðla hjá U19 kvenna í EM 2009 en þar er Ísland í pottinum.