• fös. 14. nóv. 2008
  • Fræðsla

Ráðstefna Special Olympics á Kýpur

Hluti þátttakenda ráðstefnu Special Olympics á Kýpur
Hopur_1

Á dögunum var haldin ráðstefna á vegum Special Olympics á Kýpur en ráðstefnan var haldin í tengslum við Smáþjóðaleika Special Olypics í knattspyrnu.  Guðlaugur Gunnarsson, starfsmaður KSÍ, sótti ráðstefnuna fyrir hönd Íþróttasambands Fatlaðra.

Fulltrúar frá 32 löndum sátu ráðstefnuna á Kýpur en lögð var áhersla á knattspyrnu fyrir þroskahefta á ráðstefnunni.  Var sérstaklega kynnt til sögunnar "Unified" fótbolti en þar er helmingur liðsins skipaður þroskaheftum einstaklingum.  Hefur þetta gefist ákaflega vel þar sem þetta hefur verið reynt, ekki síst á minni stöðum.

Frá æfingu á Special Olympics ráðstefnu á Kýpur