Davíð Þór í landsliðshópinn
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á landsliðshóp sínum er mætir Möltu í vináttulandsleik þann 19. nóvember næstkomandi. Davíð Þór Viðarsson úr FH kemur inn í hópinn í stað Hallgríms Jónassonar sem er meiddur.
Þetta er önnur breytingin sem Ólafur gerir á hópnum en áður hafði hann valið Eggert Gunnþór Jónsson í stað Grétars Rafns Steinssonar.