Sporthúsið gefur kvennalandsliðinu árskort
Sporthúsið hefur ákveðið að gefa 40 manna æfingahópi A-landsliðs kvenna og starfsmönnum liðsins árskort í líkamsrækt. Þessi gjöf kemur í kjölfar glæsilegs árangurs landsliðsins undanfarið og kemur sér vel í undirbúningi leikmanna fyrir úrslitakeppni Evrópumótsins sem fer fram í Finnlandi í ágúst og september á næsta ári.
Katrín Jónsdóttir fyrirliði A-landsliðs kvenna veitti þessari veglegu gjöf móttöku í höfuðstöðvum KSÍ frá Þresti Jóni Sigurðssyni eiganda Sporthússins.