Miðasala hefst á hádegi á Laugardalsvelli
Miðasala á Laugardalsvelli hefst kl. 12:00 á morgun, fimmtudaginn 30. október, á leik Íslands og Írlands í umspili fyrir úrslitakeppni EM 2009. Miiðinn kostar 1.000 krónur en frítt er inn fyrir börn 16 ára og yngri.
Ekki er selt í númeruð sæti og er sætaval því frjálst. Því er um að gera að mæta tímanlega til að fá sitt uppáhalds sæti á Laugardalsvelli.
Hægt er ennþá að kaupa miða á netinu en miðasala fer fram í gegnum miðasölukerfi á www.midi.is.