Hópurinn fyrir leikinn gegn Írum
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag á blaðamannafundi hópinn fyrir leikinn gegn Írum sem fram fer á Laugardalsvelli á morgun, fimmtudaginn 30. október kl. 18:10. Sigurður valdi 20 leikmenn í hópinn en 18 leikmenn verða á leikskýrslu á morgun.