Dómararnir koma frá Þýskalandi
Dómarar leiksins á fimmtudaginn koma frá Þýskalandi. Með flautuna verður Christine Beck og henni til aðstoðar löndur hennar Moiken Reichert Jung og Marina Wozniak. Fjórði dómari leiksins verður Oddbergur Eiríksson.
Eftirlitsmaður UEFA á þessum leik verður Michail Kassabov frá Búlgaríu og dómaraeftirlitsmaður UEFA verður Jörn West Larsen frá Danmörku.