Miðasala á Ísland - Írland
Í dag opnaði miðasala á leik Íslands og Írlands í umspili fyrir úrslitakeppni EM kvenna 2009. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 30. október kl. 18:10. Miðaverð er 1.000 krónur og er selt í ónúmeruð sæti. Frítt er inn fyrir 16 ára og yngri. Miðasala fer fram í gegnum miðasölukerfi á midi.is.
Fyrri leikurinn fer fram næstkomandi sunnudag í Dublin og ræður samanlagður árangur úr leikjunum tveimur. Það er til mikils að vinna og getur stuðningur áhorfenda skipt öllu fyrir stelpurnar í seinni leiknum.
Fyllum völlinn og öskrum stelpurnar áfram á EM.