Unglingadómaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ
Miðvikudaginn, 29. október, verður haldið unglingadómaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ og hefst námskeiðið kl. 20:00.
Unglingadómaranámskeiðið er í formi fyrirlesturs og heimanáms. Viku síðar gangast þátttakendur svo undir unglingadómaraprófið sjálft.
Námskeiðið er frítt en aldurstakmark á námskeiðið er 15 ár og öllum opið.
Þátttakendur skrái sig á magnus@ksi.is.